Fara beint í efni
PípuLeggjarinn

Persónuvernd

Hvernig Pípuleggjarinn fer með upplýsingar sem berast í gegnum vefinn.

Hvaða upplýsingum við söfnum

Þegar þú sendir verkbeiðni fáum við það sem þú skráir: nafn, síma, netfang, heimilisfang verksins, lýsingu, myndir ef þú sendir þær og kennitölu ef þú gefur hana upp. Vefurinn notar hvorki vafrakökur til eftirlits né auglýsingakerfi.

Til hvers við notum þær

Eingöngu til að svara beiðninni, meta og vinna verkið og gefa út reikning. Við seljum ekki upplýsingar og afhendum þær ekki öðrum nema lög krefjist þess.

Hvernig þær berast okkur

Beiðnin er send okkur í tölvupósti í gegnum póstþjónustuna Resend, sem vinnur upplýsingarnar fyrir okkar hönd. Afrit fer á netfangið sem þú gafst upp svo þú hafir staðfestingu.

Hversu lengi við geymum þær

Á meðan verkið stendur yfir og svo lengi sem bókhaldslög krefjast fyrir reikningsfærð verk. Beiðnum sem ekki verða að verki eyðum við þegar þeirra er ekki lengur þörf.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að vita hvaða upplýsingar við geymum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt. Sendu okkur póst á pipuleggjarinn@pipuleggjarinn.is. Þú getur einnig leitað til Persónuverndar.

Ábyrgðaraðili: Pípuleggjarinn, Vatnagarðar 16, 104 Reykjavík.